Einn tveir og grennast

Ég get ég skal ég vil!

06.11.2009 15:27:37 / spikia

Jæja loksins er hún Vigtoría á niðurleið ;)

Jæja búin að vera alveg 100% í matarræðinu þessa vikuna en reyndar ekki á æfingum búin að vera slöpp og er núna heima með beinverki og hálssærindi og dash hita :( En vigtin sagði 113 kg í morgun þannig að hún hefur lækkað um 2 kg á rétt rúmri viku allt í einu það hlaut að koma að því :haha: Vildi bara aðeins láta vita af mér það gengur allt vel er rosa dugleg á æfingum fer 5x í viku eða þessi vika hefur ekki verið þannig vegna veikinda. Vonandi gengur ykkur hinum vel :haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2009 23:10:47 / spikia

Jamm og jæja

Jæja vigtin er enn söm við sig hundleiðinleg þannig að ég ætla að hætta að horfa á hana hún er alltaf bara í kringum 115kg pikkföst. Ég ætla frekar að horfa á aðra þætti eins og ræktina er búin að auka þolið heilmikið og styrkinn enda fer ég 4-6 sinnum í viku núna er að lyfta 3var í viku og reyni að brenna að a.m.k 2var í viku. Ég er alveg hætt í gosi má segja og sætindum sem ég er bara mjög ánægð með ( er reyndar enn að fikta í brauðinu sem gæti útskýrt vigtardjöfulinn). En ég tók mál á nokkrum stöðum 9 cm fyrir tæpum 3 vikum og ákvað að gamni að taka mælingu aftur í kvöld og það eru foknir nokkrir sentimetrar missti cm á öllum stöðum nema rassinum sem stóð í stað og maginn var 1,5cm í plús en ég kenni Rósu frænku um það ég tútna alltaf út þegar hún er í heimsókn. Ég ætla að skella mælingunum hérna inn svona til að koma með smá jákvæðar fréttir ;)

Mæling 09.10.2009                         Mæling 28.10.2009

Kálfar  47,5 cm                                Kálfar  46,5 cm                  Mismunur -1,0 cm

Hné  54,5 cm                                   Hné  53,0 cm                     Mismunur -1,5 cm

Læri  80 cm                                     Læri  78,0 cm                     Mismunur -2,0 cm

Rass  132 cm                                  Rass  132  cm                    Mismunur  0,0 cm

Mjaðmir  141 cm                              Mjaðmir  136  cm                Mismunur -5,0 cm

Magi  127,5 cm                                Magi  129  cm                    Mismunur +1,5 cm

Brjóst  129 cm                                 Brjóst  126  cm                   Mismunur -3,0 cm

Háls  36,5 cm                                  Háls  36,0 cm                     Mismunur -0,5 cm

Framhandleggir 31,5 cm                   Framhandleggir 31,0 cm      Mismunur -0,5 cm

Olnbogi  34 cm                               Olnbogi  32,0 cm                  Mismunur -2,0 cm

Upphandleggir 45,5 cm                     Upphandleggir 44,5 cm        Mismunur -1,0 cm

Þetta eru bara 19 dagar þannig að ræktin er greinilega að skila sér nú hlýtur vigtin að fara að hrynja líka 8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.10.2009 22:40:59 / spikia

Alveg að verða brjáluð :(

Nú er ég búin að vera á fullu í ræktinni í rúmar 5 vikur fer lágmark 5 sinnum í viku yfirleitt 6 sinnum og er farin að auka ákafann mikið en blessuð vigtin bifast ekki :evil: Ég er meira að segja búin að taka matarræðið nokkuð mikið í gegn líka er farin að halda að spikið sé fast á mér búin að léttast um 400gr á þessum 5 vikum :cry: Stundum er þessi barátta bara hell en ég ætla nú ekki að gefast upp vona bara að þessa blessaða vigt fari að sýna einhvern lit :s Ég veit að maður á ekki að einblína of mikið á vigtina en hún ætti nú að fara niður á þessum tíma miðað við allt sem ég er að leggja á mig og þar sem ég er alveg 55kg yfir kjörþyngd 8| Smá púst hérna vonandi gengur nú betur hjá ykkur hinum. :$ 

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.10.2009 22:15:44 / spikia

Er enn á lífi!

Jæja ég held að það sé kominn tími á blogg en rosalega er maður nú orðinn latur við að blogga uss uss :$ Ég er núna um 115,5 kg hef semsagt þyngst um rúm 3 kg en er samt sem áður í miklu betra formi komin á fullt í ræktinni. Ég fer að meðaltali 5 sinnum í viku núna lyfti 3x og brenni 2x þannig að ég held að þyngdaraukningin sé að hluta til massi eða er að vona það líkaminn er allavega byrjaður að breytast :haha: Mér hefur aldrei fundist mikið mál að fara í ræktina og taka á því en minn löstur er matarræðið næ ekki að stjórna því og brauð er minn helsti óvinur bara get ekki hætt að borða brauð :s Eitt sem ég er svo ánægð með núna er að ég er komin aftur með svona áhugann á ræktinni og kannski má segja að maður sé orðinn hooked sem er bara frábært og að vera farin að hlaupa aftur er bara æði en mér finnst æðislegt að keppa við sjálfa mig að bæta mig hlaupa hraðar eða lengur í einu alveg frábært. Er reyndar núna með program þar sem ég hleyp í 1-2 min og labba í 2-3 min á milli en maður svitnar alveg helling á þessu og svo heldur maður þessu áfram en eykur bara hraðann en ég hef verið að hlaupa á 7,6 og upp 8 en tókst að taka 2x 1 mínútu spretti í dag á 9 og einn á 9,5 en þá er ég að hlaupa frekar hratt þar sem ég er nú soddan peð 8)

En ég vildi bara aðeins láta vita af mér og vonandi gengur ykkur hinum vel en ég ætla að hætta að einblína á vigtina í smá tíma nota frekar málbandið og spegilinn en ég ætla nú samt alveg að fylgjast með þyngdinni en ekki fara eftir henni. Vonandi gengur ykkur hinum rosalega vel og ég reyni að vera duglegri að blogga ;)

» 7 hafa sagt sína skoðun

18.07.2009 11:51:02 / spikia

Slow and steady :)

Jæja ákvað að skella inn smá færslu veit nú ekki hvort að það er einhver sem les þetta :$ Ég er búin að vera dugleg í hreyfingu golfast daginn inn og út en matarræðið er enn svona lala en það kemur 8) Er í sumarfríi núna sem er alveg yndislegt úthvíld og bara að leika mér á daginn svona á lífið að vera. En já ég er núna 112 kg þannig að ég er þá búin að missa rúm 5 kg síðan í byrjun maí að mig minnir sem er bara fínt betra að þetta fari niður en upp :haha: Vildi bara aðeins láta vita af mér vonandi gengur ykkur hinum rosalega vel og gleðilegt sumar :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2009 15:54:07 / spikia

Vigtoría loks eitthvað aðeins á niðurleið :)

Jæja ég er nú voða löt orðin að blogga en ég er að hreyfa mig á fullu er að golfast lágmark 2 tíma á dag og alveg upp í 5 tíma eða fer svona flesta daga þegar veðrið er þokkalegt. Vigtin er nú búin að vera voða leiðinleg við mig enda hef ég kannski ekki verið að taka matarræðið alveg með trompi en samt ekki verið að missa mig neitt í einhverju rugli bara svona venjulegu fæði. Það virkar greinilega ekki á mig því að þetta virðist sitja voða fast á mér eða allavega hingað til var alltaf um 116 kg svo bara allt í einu núna í þessari viku þá er þetta eitthvað farið að síga niður var 114,9 í gærmorgun og 114,7 í morgun þannig að ég vona bara að þetta sé að kikka í gírinn hjá mér. :haha: Ég ætla að reyna að vera duglegri að blogga en lofa engu maður er svo latur að sitja við tölvuna svona á sumrin 8) En allavega gangi ykkur hinum vel ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2009 14:20:56 / spikia

Mæling nr 2

Jæja maður er eitthvað aðeins byrjaður allavega er ég farin að hreyfa mig meira mataræðið er ekki til fyrirmyndar en það kemur kannski smám saman. Vigtin var 116.4 í morgun þannig að það er þá farið 1 kg niður síðan í síðustu viku sem ég er bara mjög sátt við vonandi heldur þetta áfram svona. Sé að þetta er ansi algengt hjá átaksbloggurum að það sé búin að vera svolítil lægð en vonandi fara allir að komast í gírinn þannig að ég bara vona að ykkur gangi vel. Planið þessa viku hjá mér er að reyna að laga mataræðið og svo er maður kominn af stað í golfinu aftur þá fara kg vonandi að fjúka en þar til næst gangi ykkur öllum rosa vel :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2009 21:58:16 / spikia

Í tómu tjóni!

Já maður er bara í tómu tjóni búin að þyngjast heilan helling uss uss en ég ætla að reyna að hætta að hugsa um það og byrja bara upp á nýtt. Það er svo langt síðan ég kom hingað inn að ég mundi ekki lykilorðið :$ Ég fór í aðra tækni núna í lok apríl sem gekk ekki þannig að maður er á svona smá bömmer en ég ætla að taka mér hvíld frá þessu núna í nokkra mánuði og fara á fullt í átak aftur eða reyna það. Ég var 117,4 í morgun og fékk sjokk hlýtur að vera mikill bjúgur því að ég var 114,9 fyrir nokkrum dögum helvítis hormónarnir ekki grennandi víst. En allavega ég er enn á lífi og ætla að reyna að lífga þetta blogg upp líka. Ný byrjun bara er það ekki bara:haha:

En hvernig gengur ykkur hinum annars ? :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2009 11:50:14 / spikia

Mæling nr 2

8)Jæja þá er maður kominn í gang aftur en það fóru hvorki meira né minna en 1,7 kg í þessari viku :d mjög ánægð með það :). Ég hef reyndar ekki verið mjög dugleg í ræktinni en matarræðið er orðið allt annað og greinilegt að það hefur verið talsverður bjúgur og viðbjóður í líkamanum eftir hátíðirnar. En núna er bara að halda áfram mig minnir að ég hafi verið að tala um að reyna að missa 0,5 - 1 kg á viku að jafnaði þannig að ég er í plús núna fyrir næstu viku byrjar vel. :haha: En gangi ykkur hinum rosa vel:!:

Þar til næst veriði sæl :d

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.01.2009 12:49:47 / spikia

Ný byrjun! Mæling nr 1

Jæja sæl veriði ég er að hugsa um að byrja bara upp á nýtt síðasti mánuður er búinn að fara í algjört rugl. Tæknimeðferðin gekk ekki upp og ég er búin að vera á hálfgerðum bömmer yfir því :( og þyngjast í þokkabót sem er nú líka lyfjunum í tengslum við það að kenna og svo náttlega jólin og áramótin. Ég ætla semsagt að byrja bara upp á nýtt frá deginum í dag og gleyma öllu fyrir þann tíma get ekki breytt því hvort eð er. Talan sem kom upp í morgun var 114,6 (upp um rúm 4 kg frá lok nóv). Ég ætla að reyna að vera voða hógvær í markmiðum og miða viða 50-100 gr á dag eða hálft til 1 kg á viku í það mesta hálft væri frábært. Vonandi eruð þið hinar enn á blússandi siglingu en ég hef ekki verið dugleg að fylgjast með ykkur hinum heldur. :$ Ég veit ekki hvort ég reyni við þessi tækni aftur en það verður þá í fyrsta lagi í mars/apríl en ég ætla að reyna ná af mér einhverjum kílóum fyrir þann tíma þannig að líkurnar á að þetta heppnist aukist.

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 20:33:26 / spikia

Mæling nr 23

Jæja það er einhver niðursveifla í gangi núna reyndar búið að vera svona í nokkrar vikur núna askotinn hafi það :evil: Ég þarf að hafa mig alla við að nenna á æfingar og matarræðið er ekki til hrópa húrra yfir. Ég var 111 kg í síðustu mælingu en það er svo sem ekki alveg að marka því ég datt svo illilega í það kvöldið áður sko af sukkmat. 8| En ég er núna staðráðin í því að sparka í rassgatið á mér og hætta þessu rugli og dagurinn í dag byrjaði bara mjög vel. Ég var mjög dugleg í matarræðinu í dag, fór á æfingu eftir vinnu og steikti mér kjúklingabringu í kvöldmat og drakk vatn með. Ætla að reyna að vakna snemma í fyrramáið og fara á æfingu fyrir vinnu en ef það tekst ekki hjá mér þá ætla ég að mæta eftir vinnu. Þetta virðist samt vera að ganga þessi niðursveifla í átaksmálum því miður segji ég en við hérna átaksbloggarar þurfum bara að vera duglegar að hvetja hinar þó að ég sé alls ekki búin að vera það sorry stelpur en ég sendi ykkur baráttustrauma samt sem áður. :)
Ég ákvað það fyrir 2 árum að fara í tæknisæðingu og þá var ég alltof þung og andlega hliðin í rugli en ég er mjög ánægð að geta sagt að ég er að fara í tækni núna bara mjög fljótlega búin að fá grænt ljós eða fæ endanlegt svar á morgun :) Ég er búin að leggja af um 18 kg en í raun miklu meira en það því að ég er búin að styrkja mig rosalega mikið og síðan er ég búin að taka andlegu hliðina alveg í gegn og hún er bara mjög fín í dag 7 9 13 ;) Það sem er helst að draga mig niður núna er að ég hef verið á lyfjum við félagsfælni og ofsakvíða og ég má ekki vera á þeim á meðgöngu ef þetta tekst þannig að ég er búin að vera að minnka skammtinn smám saman og er alveg hætt á þeim núna og kerfið er svona að fá sjokk við og við búið að vera soltið erfitt að aðlagast því að vera hætt á lyfjunum en þetta er allt að koma. En jæja ætli þetta sé ekki gott í bili þar til næst. :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 12:15:07 / spikia

Mæling nr 22 stend í stað

jæja þá má alveg segja að ég standi í stað þessa viku 200 gr upp er ekki marktækt finnst mér þannig að ég er bara sátt. Ég er aðeins að hægja kannski á geðveikinni og er bara sátt við að gera þetta bara á mínum hraða snigilshraðanum. Það skilar sér á endanum :haha: En annars er bara fínt að frétta ég reyni að æfa svona 4 sinnum í viku að meðaltali sem er bara nokkuð gott myndi ég segja en matarræðið er ekki til fyrirmyndar svo sem. Ég er samt komin með æði fyrir frosnum vínberjum djöfull er það gott mæli hiklaust með því. :haha: Ég hef séð að það eru nokkrar komnar í keppni um 5 kg fyrir jól og ég er að hugsa um að skella mér í þann pakka lika og ég sem var að segjast ætla að hægja á haha:klikk: Tek kannski smá trukk núna fyrir jól og slaka svo á það er kannski ekki svo vitlaust en ekki samt einhverja geðveika keyrslu. En gangi ykkur vel þarna úti. Sendi ykkur baráttukveðjur. :p

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 00:36:53 / spikia

Mæling nr 20 og 21

Sælar ég var ekki í stuði til að blogga í síðustu viku og vigtin var ekki marktæk svosem datt svo illalega í sukk á fimmtudeginum enda endaði það með því að ég þyngdist töluvert í mælingu 20. Þetta hefur að mestu verið vökvasöfnun því að vigtun nr 21 var nokkuð góð 800 gr niður frá mælingunni þar áður en ég hef samt ekki komist á æfingu alla vikuna vegna veikinda þannig að þetta er bara nokkuð gott. En hef það ekki lengra í bili ég er í svo miklu bloggóstuði. Gangi ykkur vel :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 11:25:19 / spikia

Mæling nr 19

Já sælar ótrúlegt að að ég sé búin að vera að blogga í 4 mánuði næstum og mæling nr 19 í morgun. Það hefur gengið svona mis vel síðasta vika var slæm en þessi góð svona gengur þetta víst bara fyrir sig. Takk fyrir allann stuðninginn hann hjálpar alveg ótrúlega mikið meira en ykkur grunar. Nú vigtin sagði 110.5 í morgun þannig að það vantar þá 2,6 kg í 20 kílóa múrinn ótrúlegt spáiði í þessu 20 KÍLÓ!:haha:



» 2 hafa sagt sína skoðun

11.10.2008 21:49:38 / spikia

Mæling nr 18 í tómu tjóni :(

Já ég er búin að vera í tómu tjóni matarræðislega séð þessa vikuna og langaði ekki að blogga :( Ég var 111,9 í gærmorgun 800gr þyngri en í síðustu viku:$ Ég virðist ekkert ráða við mig, búin að liggja í nammi og gosi og bara rugli vona að þetta sé bara Rósa að koma :( Ég var samt svaka dugleg að hreyfa mig mætti alla daga vikunnar í ræktina og tók vel á því eins gott kannski því annars hefði ég farið meira upp á vigtinni. Hef þetta ekki lengra í bili ætla að reyna að snúa blaðinu við og hætta í þessu röngu matarræði. Það hlaut svo sem að koma að því að maður dytti aðeins af vagninum 8| vonandi varir þetta bara stutt. Vonandi gengur ykkur hinum vel.

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 12785
Textabox
Ný byrjun 11.05.09

11.05.09 117,4 kg    
18.05.09 116,4 kg -1 kg
19.06.09 114,7 kg -2,7kg
29.06.09 114,0 kg -3,4kg
18.07.09 112,0 kg -5,4kg
Textabox
Gamlar mælingar!

Dags            Þyngd
22/03/08        127,9 kg   
13/06/08        121,3 kg
20/06/08        118,7 kg
27/06/08        117,9 kg
03/07/08        117,5 kg
11/07/08        119,2 kg :(
18/07/08        117,1 kg :)
25/07/08        115,7 kg :)
01/08/08        114,7 kg :)
08/08/08        115,5 kg
15/08/08        113,6 kg :)
22/08/08        113,5 kg
29/08/08        113,2 kg
05/09/08        113,1 kg
12/09/08        112,3 kg :)
19/09/08        112,4 kg
26/09/08        112,7 kg :(
03/10/08        111,1 kg :)
10/10/08        111,9 kg :(
17/10/08        110,5 kg :)
24/10/08        111,8 kg :(
31/10/08        109,7 kg :)
07/11/08        109,9 kg
14/11/08        111,2 kg :/
21/11/08        110,5 kg
Myndasöfn
Aðrir átaksbloggarar